OPINN BORGARAFUNDUR
- um stöðu þjóðarinnar -
í Iðnó, laugardaginn 8.nóvember frá 13.00-14.30
Sjá einnig vefsíðu: http://www.borgarafundur.org/
Til hvers?
- Til að hinn almenni borgari geti komið hugmyndum sínum og skoðunum á framfæri á óvissutímum.
- Á síðustu vikum hefur almennum borgurum hvergi gefist kostur á að tjá sig eða spyrja ráðamenn beinna spurninga.
- Öllum stjórnmálamönnum, seðlabankastjórum og bankastjórum verður boðið að mæta til að svara spurningum Íslendinga, milliliðalaust.
- Til að almenningur fái skýr skilaboð og sé ekki hafður útundan í umræðunni.
- Til að leita spurninga og svara um hvað framtíðin ber í skauti sér.
Fyrirkomulag
Fundarstjóri verður Gunnar Sigurðsson, leikstjóri.
Fjórir frummælendur hefja umræðuna (5-10 mín hver):
Lilja Mósesdóttir hagfræðingur, Pétur Tyrfingsson sálfræðingur, Ingólfur H. Ingólfsson fjármálaráðgjafi og Halla Gunnarsdóttir blaðamaður.
Þegar frummælendur hafa lokið máli sínu er orðið gefið laust og hver sem vill fær tvær mínútur til að tjá sig úr sal eða spyrja spurninga. Svarendum eru gefnar tvær mínútur til þess að svara.
Hverjum stjórnmálaflokki verður boðið að hafa einn fulltrúa á sviði til að svara spurningum. Við boðum formenn eða varaformenn eða að þeir sendi sinn fulltrúa og hvetjum sem flesta þingmenn að mæta .
Fundurinn verður festur á myndband til sýninga á netmiðlum og fyrir sjónvarp. Settir verða upp hátalar bæði í forsal og fyrir utan Iðnó.
Fundurinn verður tekinn upp af RUV og sendur út Þriðjudaginn 11 nóv kl. 21.00 á Rás 1 í þættinum Í heyranda hljóði umsjón Ævar Kjartanson.
Settur verður fundarritari og tekin saman ályktun í lok fundar ef þurfa þykir.
Takmarkaður sætafjöldi sýnum stuðning með þátttöku spyrjum og heimtum svör látum í okkur heyra.
F.h. undirbúningshóps: Gunnar Sigurðsson leikstjóri (gus@mmedia.is - s: 897 7694) og Davíð A. Stefánsson bókmenntafræðingur (david@ljod.is - s: 864 7200).
Athugasemdir
Spyrjið Ingibjörgu ef hún lætur sjá sig þarna hvernig henni líki að sumir geti keypt upp fjölmiðlana og hvort fjölmiðlafrumvarpið hafi ekki átt rétt á sér. Þori að veðja að hún snýr út úr
Guðrún (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 00:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.